Hugmyndir flytja fjöll

Ég bý til hugmyndir og texta fyrir félög sem vilja tala skýrt, slá réttan tón og hrífa fólk með sér. Hvort sem verkefnið snýr að auglýsingum, leit að réttu nafni eða óvæntum uppátækjum þá getum við fundið rétta leið.

Orð lýsa gæðum

Vel skrifuð skilaboð eiga að vera á mannamáli og vekja tilfinningar. Ég elska að tengjast fólki á íslensku og ensku hvort sem það er með auglýsingum, vefsíðutextum, ársskýrslum, færslum, ávörpum, fréttum, sendibréfum, leikhandritum, viðtölum eða söngvum.

Ég heiti Matthías

Ég er verðlaunaður handritshöfundur og tónlistarmaður og hef víðtæka reynslu af skapandi vinnu fyrir vörumerki í landinu. Þá hef ég unnið við gerð frétta og texta af ólíku tagi auk þess sem ég var heimsfrægur í u.þ.b. 15 mínútur. Ég vil vinna með metnaðarfullu fólki að verkefnum sem skipta máli.

Tölum saman

hugmyndasmidur
@hugmyndasmidur.is

Matthías Tryggvi Haraldsson
Hugmyndasmiður slf.